Smábátafélagið Reykjanes

Aðalfundur smábátafélagsins Reykjanes verður haldinn laugardaginn 27. september.  Fundað verður í Sjávarsetrinu Sandgerði og hefst fundurinn kl 13:00.

Halldór Ármannsson formaður félagsins hvetur félagsmenn til að fjölmenna á fundinn.  Taka þátt í umræðum og fræðast um það sem efst er á baugi í málefnum smábátaeigenda.

Dagskrá fundarins:

1.         Formaður setur fund.

2.         Kosning fundarstjóra og fundarritara.

3.         Skýrsla stjórnar, fyrirspurnir og umræður.

4.         Ársreikningur félagsins. 

5.         Ávarp gesta, Örn.

6.         Tillögur til 41. aðalfundar LS.

7.         Kosning fulltrúa á aðalfund LS

8.         Kosning stjórnar.

9.         Kosning formanns.

10.      Önnur mál.

11.      Formaður slítur fundi.