“Örn Pálsson og Arthúr Bogason hafa stýrt Landssambandi smábátaeigenda í 40 ár. Báðir láta þeir nú af störfum.
Örn hefur verið framkvæmdastjóri sambandsins frá stofnun þess. Hann lýsir því hvernig hann tók við þessu starfi og hvaða tilgangi sambandið hefur þjónað í gegnum áratugina. Örn segir meðal annars frá baráttunni við stórútgerðina eftir að kvótakerfinu var komið á.
Kjartan Páll Sveinsson tekur við starfi formanns Landsambandsins. Hann horfir fram á veginn og lýsir því meðal annars hvernig stjórnvöld hér á landi ættu að horfa til Noregs sem fordæmis fyrir smábátaútgerðina hér á landi.”
Viðtalið má nálgast í spilara RÚV: www.ruv.is/utvarp/spila/thetta-helst/33405/9uideu













