Innviðaráðuneytið hefur birt reglugerð um strandveiðar fyrir 2026. Í reglugerðinni kemur fram að stjórnvöld hafa horfið frá áformum um 100% eignarhald. Helstu nýmæli eru þessi:
“Verði fiskiskip, sem leyfi til strandveiða er bundið við, selt eða leigt eftir að Fiskistofa hefur gefið út strandveiðileyfi, eða á meðan strandveiðitímabili stendur, fellur strandveiðileyfið niður. Sama á við ef eignarhald á eiganda eða útgerð skipsins breytist á tímabilinu eftir að leyfi hefur verið gefið út, sbr. 4. og 5. mgr. Leyfishafi skal tilkynna Fiskistofu um allar slíkar breytingar án tafar. Vanræksla á tilkynningarskyldu telst brot gegn reglugerð þessari og getur leitt til afturköllunar leyfis, auk annarra viðurlaga, sbr. 6. gr.
Strandveiðileyfi fellur einnig niður ef gerðir eru samningar eða ráðstafanir sem fela í sér að annar aðili en leyfishafi öðlast réttindi til ráðstöfunar, stjórnunar eða tekjuöflunar af veiðum skipsins á strandveiðitímabilinu.”
Að öðru leiti er reglugerðin í megindráttum svipuð og fyrir seinustu vertíð.
Reglugerðina má nálgast hér og er henni gerð góð skil í Fiskifréttum.













