Alþingi hefur samþykkt frumvarp meiri hluta atvinnuveganefndar um veiðistjórn grásleppu. Frumvarpið var samþykkt með 34 atkvæðum gegn 20, einn þingmaður sat hjá.
Fyrir 3. umræðu lagði meirihlutinn til breytingu á frumvarpinu. Meðal þess var að lögin tækju gildi 1. september 2026. „Þannig mun aflamarkskerfið halda gildi sínu út þetta fiskveiðiár og veiðistjórn í grásleppu færð til fyrra horfs frá og með nýju fiskveiðiári“, eins segir nefndaráliti meirihlutans.














