Vorfundur smábátasjómanna: Öryggismál í forgrunni

Vorfundur smábátasjómanna 2026 verður haldinn 9. apríl 2026 frá kl. 17:00 – 18:30.

Að fundinum standa Landssamband smábátaeigenda, Samgöngustofa og Slysavarnaskóli sjómanna. Fundurinn er haldinn á netinu en áhugasömum gefst möguleiki að hitta aðra sjómenn, ræða málin, njóta kaffiveitinga og fylgjast með fundinum í húsnæði Slysavarnafélagsins Landbjargar víða um land. Frekari upplýsingar má finna finna á þessum hlekk.

Dagskrá

  • Opnun: Þorsteinn Þorkelsson sérfræðingur Samgöngustofu
  • Umræður og sýnikennsla um frágang, uppsetningu og losun björgunarbáta. Einar Magnús Magnússon og Árni Elvar Emilsson starfsmenn Samgöngustofu.
  • Hættumat um borð og Aggan öryggisapp smábáta. Einar Magnús Magnússon og Árni Elvar Emilsson
  • Kaffihlé
  • Frumsýning á nýjum auglýsingum Slysvarnafélagsins Landsbjargar og Samgöngustofu um frágang og uppsetningu björgunarbáta og mikilvægi gátlista áður en lagt er af stað úr höfn.
  • Kynning og umræður um öryggismál smábáta. Bogi Þorsteinsson skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna
  • Áherslur aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar vegna strandveiða
  • Skútan lögskráningarkerfi sjómanna notkun og forsendur. Bjarki Sigþórsson, fagstjóri náms og skírteinamála sjófarenda hjá Samgöngustofu
  • Umræður ef tími gefst til (fundarmönnum verður líka boðið að senda spurningar inn á fundinn sem verður svarað á fundinum eða eftir hann gefist ekki tími til)