Töluvert hefur verið haft samband við LS varðandi umsóknir á strandveiðileyfum. Margir smábátaeigendur eru í vandræðum sökum langra biðlista í skoðun á björgunarbátum hjá Viking í Hafnarfirði og Gúmmíbátaþjónustu Norðurlands. Eins og staðan er nú er ekki hægt að sækja um strandveiðileyfi án haffærisskírteinis.
Innviðaráðuneytið og Fiskistofa hafa beðið okkur um að miðla því til félagsmanna að þetta sé í skoðun hjá ráðuneytinu, m.a. mögulegri reglugerðarbreytingu til að bregðast við þessum aðstæðum. Vilyrði hefur verið gefið um að ófullnægjandi haffærisskírteini stöðvi ekki umsókn um strandveiðileyfi.













