LS vill minna á vorfund smábátasjómanna 2026 sem haldinn verður 9. apríl 2026 frá kl. 17:00 – 18:30.
Að fundinum standa Landssamband smábátaeigenda, Samgöngustofa og Slysavarnaskóli sjómanna. Fundurinn er haldinn á netinu en áhugasömum gefst möguleiki að hitta aðra sjómenn, ræða málin, njóta kaffiveitinga og fylgjast með fundinum í húsnæði Slysavarnafélagsins Landbjargar víða um land. Frekari upplýsingar má finna finna á þessum hlekk.













