Þann 9.apríl var haldinn vorfundur smábátasjómanna í fyrsta skipti í samstarfi Landssambands smábátaeigenda, Samgöngustofu og Slysvarnafélagsins Landsbjargar.
Fundinum var streymt á netinu frá skólaskipinu Sæbjörg í Reykjavíkurhöfn og jafnframt var sjómönnum víða um land boðið í húsnæði eininga Slysvarnafélagsins Landbjargar. Til að hittast fá veitingar og horfa saman á útsendingu. Fundurinn verður áfram aðgengilegur á heimasvæði fundarins: https://island.is/vorfundur
Miðað við fjölda sem opnuðu streymi og komu í húsnæði Slysavarnafélagsins Landsbjargar, má áætla að um 400 manns hafi fylgst með fundinum.
Meðfylgjandi eru myndir sem voru teknar í húsnæði Slysavarnafélagsins Landsbjargar víða um land.






















