Varðandi veiðiskyldu og upphafsdag strandveiða

LS hefur borist nokkrar fyrirspurnir frá aðilum sem stílaðir eru á 4. maí til strandveiða. Þeir hafa með dagsetningunni tekið mið af að hafa lokið veiðum upp í veiðiskyldu. Undanfarið hefur veður hins vegar sett strik í reikninginn og vilja margir að strandveiðileyfið taki ekki gildi fyrr en tilkynning berst frá þeim. Sömu sögu er að segja varðandi grásleppuveiðar.

Svar Fiskistofu er eftirfarandi: senda skal beiðni um breytingu á upphafsdegi strandveiða á fiskistofa@fiskistofa.is