Ráðherra bent á misfellu í ráðgjöf

LS hefur sent Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra tillögur sínar um heildarafla á næsta fiskveiðiári.  Þar er m.a. farið fram á að ráðherra heimili 213.413 tonna afla í þorski, en ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar hljóðar upp á 201.674 tonn.  Tillaga LS er tilkomin vegna vanmats stofnunarinnar á veiðistofni þorsks.  Mælingar sem gerðar voru í mars sl. hafi sýnt hann vera 8% stærri en áætlað var í fyrra. 

Í greinargerð með tllögu LS segir m.a.

„Samkvæmt skýrslu Hafrannsóknastofnunar 12. júní sl. er veiðistofn ársins 2025 sagður 1.050 þúsund tonn.  Við ákvörðun um heildarafla fyrir yfirstandandi fiskveiðiár var miðað við að hann yrði 972 þúsund tonn. Vegna þessa vanmats á stærð stofnsins telur LS óhjákvæmilegt að ráðgjöf frá síðasta ári verði endurreiknuð og mismuninum bætt við útkomu þessa árs.  Útreikningar taka til beggja gilda sem notuð eru í aflareglu; veiðistofns og útgefins aflamarks á yfirstandandi fiskveiðiári.“

„Vanmat af þessu tagi hafði jafnframt áhrif á leyfilegan heildarafla á yfirstandandi fiskveiðiári.  Samkvæmt endurskoðaðri stærð veiðistofns hefði hann átt að vera 211.647 tonn eða 7.826 tonnum hærri en útgefið var.  LS lítur svo á að sá afli eigi að bætast við framkominn útreikning á leyfilegum heildarafla á fiskveiðiárinu 2026/2027, hann verði 213.413 tonn.“

„ Eins og að líkum lætur eru hér gríðarlegir hagsmunir í húfi – 11.738 tonn.  Þorskverð í hæstu hæðum, niðurskurður á aflaheimildum samkeppnisþjóða, gríðarleg eftirspurn eftir þorski og miljarða aukning í afla- og útflutningsverðmæta.“ 

Bréf LS til ráðherra