Elding, félag smábátaeigenda í Ísafjarðarsýslu, boðar til aðalfundar í september. Fundarhöld verða með óvenjulegu sniði þetta árið og verða í tvennu lagi: aukafundur þriðjudaginn 8. september kl.10.00 og aðalfundur sunnudaginn 13. september kl.13.00. Báðir fundir verða haldnir í Guðmundarbúð á Ísafirði (Sindragata 6).
——————————————–
Þann 8. sept koma formaður Landsamband smábátaeigenda Kjartan Páll og nýráðinn framkvæmdastjóri Bryndís Ósk. Munu þau fara yfir stöðu mála og starfsemi LS á árinu. Í kjölfarið hefst undirbúningur fyrir aðalfund og landsfund, auk annarra mála.
Fundur hefst kl 10.00
——————————————–
Þann 13. sept verður lokið venjulegum aðalfundarstörfum:
- Kosning Stjórnar
- Tillögur samþykktar til Landsfundar
- Önnur mál
Fundur hefst kl 13.00
Kveðja,
Benedikt Bjarnason, formaður Eldingar













