LS krefst skýringa á vinnubrögðum Samgöngustofu varðandi lögskráningar

Fimmtudaginn 5. nóvember barst Landssambandi smábátaeigenda tilskipun frá Samgöngustofu. Bréfið var svohljóðandi:

„Góðan daginn

Vinsamlegast komið eftirfarandi tilkynningu til ykkar félagsmanna:

„Uppfærsla á lögskráningarkerfi sjómanna. – AIS

Nýlega var lokið við að tengja saman lögskráningakerfi sjómanna og sjálfvirkt auðkenningarkerfi skipa (AIS). Á næstunni þarf að uppfæra lögskráningarkerfið á grundvelli þeirra nýju upplýsinga sem liggja fyrir. Miðað verður við að afskrá áhafnir af skipum ef það hefur ekki verið á sjó sl. 3 daga þar á undan. Ákvæði laga um áhafnir skipa nr. 82/2022 kveður á um að afskrá eigi áhöfn þegar skip kemur í höfn og hefur svo verið um áratuga skeið.

Til skoðunar er að taka upp til frambúðar sjálfvirka afskráningu á áhöfnum skipa þegar skip kemur í höfn eða þegar tilteknar klukkustundir eru liðnar frá því skipið kom í höfn. Tilgangur þess er að auðvelda skipstjórum og útgerðum framkvæmd afskráningar áhafna skipa sinna, auk þess að auka virkni lögskráningarkerfisins einkum til að sannreyna siglingatíma á sjó vegna öflunar og viðhalds atvinnuréttinda einstaklinga. Tilkynnt verður sérstaklega hvort og hvenær það kemur til framkvæmda.““

LS hefur óskað eftir skriflegum skýringum á þessari valdsmannslegu tilskipun.