Í morgun undirrituðu Landssamband smábátaeigenda (LS) og Samtök smærri útgerða (SSÚ) nýjan kjarasamning fyrir smábáta við Sjómannasamband Íslands (SSÍ), Félag Skipstjórnarmanna (FS), VM – félag vélstjóra og málmtæknimanna og Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur (SVG). Samningurinn er undirritaður með fyrirvara um samþykki félaga í öllum samtökum.
Meðal umsaminna atriða er 3,5% framlag útgerðarinnar í tilgreinda séreign fyrir sjómenn á smábátum og lækkuð skiptaprósenta.
Samningurinn gildir til ársins 2033. Báðir samningsaðilar geta þó sagt honum upp á gildistímanum: útgerðin árið 2028 og sjómenn árið 2029.













