135 bátar náðu 12 dögum

 
 
Tölur um strandveiðar í maí sýna meiri mismun milli veiðisvæða heldur en áður hefur verið.  Veiðislóðin fyrir Suðurlandi var þakin þörungablóma sem kom í veg fyrir að veiðar gengju sem skyldi.  Afli í róðri var að meðaltali 500 kíló sem er fjórðungi lægra en á árinu 2020.
 
Tölurnar staðfesta rækilega hversu náttúruöflin hafa sterk áhrif á strandveiðarnar.
 
 
Á öðrum svæðum sjást ekki viðlíka tölur þó þær séu ekki með öllu jákvæðar nema á svæði C, þar sem afli í róðri jókst að meðaltali um 13 kg milli ára.
 
 
Heilt yfir er þó ekki annað að sjá en strandveiðar hafi gengið vel í maí.  Alls 135 bátar náðu að nýta alla daga sem í boði voru og 50 bátum vantaði aðeins einn dag upp á að ná í tólfuna.  Til samanburðar voru aðeins 31 bátur sem tókst að ná fullum fjölda í maí á síðasta ári, en eins og menn muna voru brælur þá afar tíðar.
 
 
Fiskverðið er annar stór þáttur í útgerð strandveiðibáta.  Maí skilaði 287 kr/kg meðalverði fyrir þorsk, mismunur 66 kr frá í fyrra.
 
 
Agla ÁR 79 varð aflahæst strandveiðibáta í maí með 10.749 kg.