203 bátar byrjaðir á grásleppu


Í
gær 4. apríl höfðu 203 bátar hafið grásleppuveiðar.  Þetta eru nokkuð færri en á sama tíma í fyrra, en þá höfðu 225 bátar lagt netin.   Fækkunin gefur þó ekki tilefni til að ætla að áhugi á veiðunum sé minni en í fyrra
þar sem veiðidagar eru nú 12 færri eða 50.  Af þeim sökum kjósa fleiri að hefja veiðarnar síðar en í fyrra.

 

Flestir
eru byrjaðir veiðar á svæði E, 81 bátur, en það er jafnframt stærsta svæðið nær frá
Skagatá austur að Fonti.