32. aðalfundur LS 13. og 14. október

Aðalfundur Landssambands smábátaeigenda sá 32. í röðinni, verður haldinn á Grand Hótel í Reykjavík 13. og 14. október nk.  Nýr liður er á dagskrá fundarins:
Fyrirspurnir:  Fulltrúar framboða til Alþingis.
Fundurinn hefst kl 13:00 með ávarpi Halldórs Ármannssonar formanns.
aðalf fánar.jpg
Öll svæðisfélög LS hafa haldið aðalfundi á undanförnum 3 vikum og kjörið fulltrúa sína á 32. aðalfund LS alls 36 talsins.  Auk þess hafa þau samþykkt ályktanir sem teknar verða fyrir á aðalfundinum.
Tekið skal fram að aðalfundur LS er öllum smábátaeigendum opinn og geta þeir með skráningu tekið virkan þátt í störfum fundarins að því undanskildu að þeir hafa ekki atkvæðisrétt.  
LS_adalfundur_2016_dagskra.jpg