5. desember 1985

Í dag eru 29 ár liðin frá stofnun Landssambands smábátaeigenda.  Stofnfundur félagsins bar upp á fimmtudag og var haldinn í Borgartúni 6 Reykjavík.  Hann hófst á því að Arthur Bogason formaður undirbúningsnefndar setti fundinn og hélt hvatningaræðu.
Alls rituðu 33 smábátaeigendur undir fundargerð stofnfundar LS. 
Í fundargerð kemur fram að margir þeirra tóku til máls á fundinum.  Hér er vitnað til hluta úr ræðum fjögurra fundarmanna:
Sveinbjörn Jónsson Suðureyri: 
„fjallaði hann um smábátaútgerð og gildi hennar og stöðu í þjóðfélaginu, 
ásamt mikilvægi þess að menn standi saman
Albert Tómasson Garðabæ:
„talaði um gildi þess að draga fisk úr sjó sem frjálsir menn  
Magnús Sveinsson Hafnarfirði:
„sagðist hafa verið á móti stofnun Landssambandsins, en nú væri 
málum þannig komið að lífsspursmál væri að Landssambandið 
yrði sterkt og sjálfstætt.
Skarphéðinn Árnason Akranesi:
„lagði áherslu á það atriði, að fá að vera kóngur í ríki sínu, 
en það væri einmitt það sem trillusjómaðurinn væri.  
Því næst taldi hann nauðsynlegt að allir trillusjómenn yrðu sameinaðir, 
þá mundu þeir hrinda af sér þeim afarkostum, sem þeir búa nú við.
Orð sem sannarlega eiga enn við.
Mynd af logo LS.png

Til hamingju með daginn