55% stunduðu eingöngu strandveiðar

Birt hefur verið á vef Alþingis svar Kristjáns Þórs Júlíussonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Ingu Sæland um strandveiðar árið 2020.
Alls beindi Inga átta spurningum til ráðherra þar sem vikið var að flestum hliðum strandveiða.  Þeirra á meðal var skipting bátagerða á veiðunum, þ.e. smábáta í aflamarki, krókaaflamarki og báta eingöngu á strandveiðum.
55% voru eingöngu á strandveiðum – alls 369 bátar, 33 voru í aflamarki og 267 í krókaaflamarki.
Einnig var spurt um umframafla í þorski yfir „skammti.  Alls 172 tonn. 
2,9% landana voru yfir „skammti eða alls 522 sjóferðir.