Aðalfundur Eldingar – félag smábátaeigenda í Ísafjarðarsýslum – var haldinn á Ísafirði 24. september 2017
Veiðigjöld voru rædd af miklum þunga. Í málflutningi manna kom fram hörð gagnrýni á að við útreikninga á upphæð veiðigjalds væri öll útgerð og landvinnsla sett saman í einn pott. Krafa fundarins var að afkoma smábáta yrði reiknuð sér.
Eftirfarandi var samþykkt um veiðigjald.
Aðalfundur Eldingar mótmælir álagningu veiðigjalda eins og þau eru lögð á í dag., Það er ekki eðlilegt að notaðar séu tveggja ára tölur við útreikninga á gjaldinu.
Inn í útreikningana eru sett í einn pott afkoma landvinnslu, frystitogara, uppsjávarskipa, ísfiskstogara, báta og smábáta. Það er krafa fundarinns að afkoma smábáta verði reiknuð sér. Það getur ekki talist eðlilegt, eins og staðan er í dag, með mjög lágu fiskverði, sem ætti að koma landvinnslunni vel að þá hækki veiðigjald á smábáta.
Í þessari gjaldtöku sannast alveg kristaltært að „það á að hengja bakara fyrir smið.
Aðalfundur Eldingar krefst þess að hluti veiðigjaldanna verði eftir í þeirri höfn sem að fiskinum er landað.
Sjá allar ályktanir aðalfundar Eldingar: 2017 Elding tillögur.pdf
Stjórn Eldingar var endurkjörin:
Ketill Elíasson formaður
Kristján Andri Guðjónsson
Þórður Sigurvinsson
Karl Kjartansson
Páll Björnsson