A og C svæði fái fleiri daga

 
 
 
Landssamband smábátaeigenda hefur sent Fiskistofu erindi þar sem vakin er athygli á að veiðiheimildir til strandveiða á svæðum A og C verði ekki fullnýttar.   Veiðum lauk á svæði A í gær og lýkur á C svæðinu í dag.
 
 
Í bréfi LS er óskað eftir að einum degi verði bætt við á svæði A og tveimur á C.  Dagarnir verði nýttir í næstu viku á tímabilinu 18. –  21. ágúst.
 
 
Erindið er nú til meðferðar í Fiskistofu og Sjávarútvegsráðuneytinu og má gera ráð fyrir svari fljótlega.