Um næstu helgi halda þrjú svæðisfélög LS aðalfundi sína.
Strandveiðifélagið KRÓKUR – félag smábátaeigenda í Barðastrandarsýslu – fundar í Þorpinu á Patreksfirði laugardaginn 22. september. Fundurinn hefst kl. 17:00.
Formaður Króks er Tryggvi Ársælsson Tálknafirði
Elding – félag smábátaeigenda í Ísafjarðarsýslum – fundar í Félagsheimili Bolungarvíkur sunnudaginn 23. september. Fundurinn hefst kl. 12:00.
Formaður Eldingar er Sigurður Kjartan Hálfdánsson Bolungarvík
Smábátafélagið Strandir heldur aðalfund sunnudaginn 23. september í Malarkaffi á Drangsnesi. Fundurinn hefst kl. 20:30.
Formaður Stranda er Haraldur Ingólfsson Drangsnesi.