Svæðisfélög LS undirbúa sig nú hvert af öðru fyrir aðalfundi félaganna. Snæfell ríður á vaðið og hefur boðað félagsmenn sína til fundar í Grundarfirði nk. sunnudag 17. september.
Fundurinn verður haldinn á Kaffi Emil og hefst kl 16:00.
Snæfell er fjölmennast þeirra 16 svæðisfélaga sem mynda LS. Alls 123 bátar í eigu félagsmanna.
Á næstu vikum funda félögin hvert af öðru og eru félagsmenn hvattir til að fjölmenna á fundina og sína þannig styrk smábátaeigenda. Mörg málefni brenna á félagsmönnum sem nauðsynlegt er að ræða og álykta um.
Þar má nefna:
- Veiðigjald – en hækkun um rúm 100% á þorski og ýsu kom til framkvæmda 1. september sl.
- Viðbrögð við lágu fiskverði.
- Allir dagróðrabátar fái línuívilnun.
- Strand-, makríl- og grásleppuveiðar.
- Breytingar á lögum LS.
Árborg
Aðalfundur Árborgar verður haldinn í Rauða húsinu á Eyrarbakka nk. þriðjudag 19. september. Fundurinn hefst kl 18:00.
Strandveiðifélagið KRÓKUR
Aðalfundur KRÓKS verður haldinn á Fosshótelinu á Patreksfirði laugardaginn 23. september. Fundurinn hefst kl 14:00.