Í hönd fer tími aðalfunda svæðisfélaganna. Snæfell ríður á vaðið með aðalfund sinn nk sunnudag 16. september. Fundurinn verður haldinn á Hótel Framnesi í Grundarfirði og hefst kl 14:00.
Búast má við fjölmenni á fundinn, enda er félagið stærst svæðisfélaga LS sem tryggir því m.a. flesta fulltrúa á aðalfund LS alls 6 auk stjórnarmanns í LS, sem er formaður félagsins Alexander Kristinsson.
Sjá nánar fundarboð til.pdf félagsmanna.
Smábátafélag Reykjavíkur
Aðalfundur verður haldinn í félagsmiðstöð félagsins nk. mánudag 17. september. Fundurinn hefst kl 20:00.
Formaður Smábátafélags Reykjavíkur er Þorvaldur Gunnlaugsson sem jafnframt er fulltrúi félagsins í stjórn LS.
Sjá nánar fundarboð.pdf.
Árborg
Aðalfundur Árborgar verður í Rauðahúsinu á Eyrarbakka nk. þriðjudag 18. október. Formaður Árborgar er Þorvaldur Garðarsson sem jafnframt er fulltrúi félagsins í stjórn LS.
Kjarasamningur
Ætla má að nýgerður kjarasamningur LS og sjómannasamtakanna verði mest til umræðu á fundum svæðisfélaganna. Þar verður rækilega farið yfir samninginn og greidd um hann atkvæði. Formaður samninganefndar LS, Pétur Sigurðsson, mun af því tilefni mæta á fundina auk formanns og framkvæmdastjóra LS.