Aðalfundir svæðisfélaga LS

 
 
Í hönd fer tími fundarhalda hjá smábátaeigendum.  Aðalfundir bresta á hver af öðrum á næstu vikum.  
 
Fyrst ríður á vaðið Báran í Hafnarfirði nk. laugardag 12. september.  Fundurinn verður haldinn á Hótel Víking Hafnarfirði (á móti Fjörukránni) og hefst kl. 12:00.  
 
Léttur hádegisverður er í boði félagsins.
 
 
 
Formaður BÁRUNNAR er Jón B. Höskuldsson
 
 
 
Snæfell –  aðalfundur í Ólafsvík
 
 
Snæfell hefur boðað félagsmenn sína til aðalfundar nk. sunnudag 13. september.  Fundurinn verður á Veitingashúsinu Hrauni Ólafsvík og hefst kl 16:00.
 
Snæfell er fjölmennast svæðisfélaga LS – 151 bátur í eigu félagsmanna.  Það tryggir félaginu 6 fulltrúa á 31. aðalfund LS sem haldinn verður 15. og 16. október.
 
Félagið býður félagsmönnum til kvöldverðar að loknum fundi.
 
 
 
Fomaður SNÆFELLS er Valentínus Guðnason
 
 
 
Formaður LS og framkvæmdastjóri munu mæta á aðalfundi svæðisfélaganna.  Auk venjulegra dagskrárliða aðalfunda verður nýgerður kjarasamningur um ákvæðisvinnu við línu og net kynntur og atkvæði greidd um hann.