Nú fer í hönd tími aðalfunda svæðisfélaga LS. Smábátafélag Reykjavíkur og Snæfell ríða á vaðið.
Reykvíkingar halda sinn fund nk. föstudag 14. september í félagsmiðstöðinni í Grófinni og hefst fundurinn kl 13:00. Innan Smábátafélags Reykjavíkur eru 41 félagsmenn.
Formaður félagsins er Þorvaldur Gunnlaugsson.
Aðalfundur Snæfells verður á Kaffi Emil í Grundarfirði sunnudaginn 16. september og hefst fundurinn kl 16:00.
Snæfell er fjölmennast félaga innan LS með 120 félagsmenn.
Formaður félagsins er Örvar Marteinsson.
Mikilvægt að allir félagsmenn mæti á fundina þar sem mörg mikilvæg mál eru nú í deiglunni. Má þar nefna kröfu smábátaeigenda um leiðréttingu á veiðigjöldum, endurskoðun á fyrirkomulagi grásleppuveiða, strandveiðar og línuívilnun svo eitthvað sé nefnt.