Aðalfundur Skalla

Guðni Már Lýðsson formaður Skalla – félags smábátaeigenda á N-landi vestra – hefur boðað félagsmenn sína til aðalfundur nk. fimmtudag 7. október.
Fundurinn verður haldinn á veitingahúsinu Harbour á Skagaströnd og hefst kl 15:00.
Mikil gróska hefur verið í útgerð smábáta frá Skagaströnd og vonast formaður til að fundarsókn endurspegli þann mikla áhuga.
Skalli á rétt á tveimur fulltrúum á aðalfund LS sem haldinn verður á Grand Hótel 14. og 15. október nk.   Alls eru 54 bátar í eigu félagsmanna.
Forsvarsmenn LS munu mæta á fundinn og fara yfir þá stöðu sem nú ríkir í málefnum smábátaeigenda.