Aðalfundur Skalla

Skalli – félag smábátaeigenda á N-landi vestra
Guðni Már Lýðsson formaður Skalla hefur boðað félagsmenn sína til aðalfundur 
nk. laugardag 30. september.
Fundurinn verður haldinn á veitingahúsinu Harbour á Skagaströnd.
 
Fundurinn hefst kl 15:00.
Mikil gróska hefur verið í útgerð smábáta frá Skagaströnd og vonast formaður til að fundarsókn endurspegli þann mikla áhuga.
Á fundinum verða kosnir fulltrúar Skalla á aðalfund LS sem haldinn verður 20. og 21. október á Icelandair Hótel Reykjavík Natura (Hótel Loftleiðir).