Smábátafélag Reykjavíkur boðar félagsmenn sína til aðalfundar miðvikudaginn 14. september. Fundurinn verður í húsnæði félagsins í Suðurbugt (Verbúð 5) og hefst kl 20:00.
Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna til fundarins og taka þátt í að móta afstöðu félagsins í hinum ýmsu málum. Þar má nefna fyrirhugaðar breytingar á lögum um stjórn fiskveiða, strandveiðar, grásleppumál ofl.
Alls lönduðu 95 bátar afla á árinu 2010 sem tilheyra félagsmönnum í Smábátafélagi Reykjavíkur, sem er fjölgun um tuttugu báta.
Formaður félagsins er Garðar Berg Guðjónsson.
Framkvæmdastjóri LS mætir á fundinn.