Fiskistofa úthlutaði í dag aflahlutdeild í makríl og aflamarki til báta og skipa á grundvelli hennar. Áður hafði stofan framkvæmd bráðabirgðaúthlutun, 80% af ætluðu aflamarki. Úthlutunin nú er endanleg þar sem búið er að taka tillit til athugasemda sem bárust fyrir 10. júlí sl.
Í B-flokki eru alls 480 bátar, það er þeir sem höfðu veiðireynslu á árabilinu 2009 -2018. Af þeim eru 377 sem fá minna en tonn í úthlutun, en 34 sem fá meira en 30 tonn.
Aflahlutdeild færabáta er 2,24% sem færir þeim 2.857 tonn í veiðiheimildir á vertíðinni sem nú stendur yfir. Við þær heimildir bætast 4.000 tonna pottur sem eyrnamerktur er smábátum.
Gera má ráð fyrir að um eitt hundrað bátar séu útbúnir til færaveiða á makríl og því ljóst að viðbótarkvóti upp á 4.000 tonn á eftir að koma sér vel fyrir aðila sem hafa hug á að hefja veiðar.
Umsóknir sem berast fyrir miðnætti hvers föstudags eru afgreiddar í næstu viku þar á eftir. Hámarksúthlutun hverju sinni eru 35 tonn.
Rétt er að vekja athygli á að þeir bátar sem enga úthlutun hafa fengið þurfa að flytja til sín aflamark til að geta hafið veiðar og öðlast þá samtímis rétt til að fá úthlutað viðbótakvóta.













