Aflaviðmiðun til strandveiða verði aukin

Landssamband smábátaeigenda hefur sent sjávarútvegsráðherra bréf þar sem ítrekaðar eru breytingar sem félagið telur nauðsynlegt að gerðar verði á lögum um stjórn fiskveiða.   
Eins og fram hefur komið var hætt við að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða sem byggði á heildarendurskoðun.  Á fundi LS með atvinnuveganefnd Alþingis 5. maí sl. hefði hins vegar komið fram að áformað væri að leggja til nokkrar breytingar á lögunum umfram þær sem eru í frumvarpi um rækjuhlutdeild sem nefndin hefur til meðferðar.
LS vill að atvinnuveganefnd nýti það tækifæri sem þarna gefst og lögfesti þau atriði sem félagið hefur barist fyrir og afgreiði áður en þingið fer í sumarleyfi.  Meðal þeirra eru að aflaviðmiðun til strandveiða verði hækkuð.  Sanngjarnt er að aukinn heildarafli í þorski skili sér til strandveiða eins og annarra útgerðaflokka. Með breytingunni mundi dögum til veiðanna fjölga sem ekki veitti af í veiðikerfi sem nú væri komin góð reynsla á og gerði það m.a. kleift að hægt væri að sinna ferskfiskmörkuðum yfir sumartímann. 
Aðrar áherslur LS eru eftirfarandi:
  • heimilað verði að skipta á krókaaflamarki í ufsa fyrir aflamark í ýsu
  • veittur verði áframhaldandi frestur vegna hámarkskrókaaflahlutdeildar
  • byggðakvóti yrði nýttur af dagróðrabátum, honum yrði ekki úthlutað til báta, hann yrði í formi ívilnunar sem byggðarlögin mundu ákveða
  • línuívilnun verði fyrir alla dagróðrabáta með því að ákveða 3% á þá báta sem ekki hafa hana í dag.
Sjá bréf LS:
 
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur undirritað breytingu á reglugerð sem heimilar aukna aflaheimild upp á 2.000 tonn af þorski á yfirstandandi strandveiðitímabili. Heildarráðstöfun í þorski til strandveiða verður því 12.000 tonn í stað 10.000 tonna.
Með þessari aukningu hækkar hlutfall strandveiða á þorski upp í rúm 55% af þorski innan félagslega hluta fiskveiðistjórnunarkerfisins. Svo stórum hluta heimilda hefur ekki verið ráðstafað til strandveiða áður.
Aukningin kemur af skiptimarkaði, þar af 1.300 tonn af þorski sem fengust í skiptum fyrir heimildir á makríl.

„Þessi ákvörðun er tekin til að rétta af þann halla sem er afleiðing þess fyrirkomulags sem hefur verið á strandveiðum þar sem sum byggðarlög hafa borið skarðan hlut frá borði“ segir matvælaráðherra.