Afli sem hlutfall af úthlutun hjá krókaaflamarksbátum á 1. ársfjórðungi fiskveiðiársins er á sama róli og hann var í fyrra.
Þorskafli þeirra er er að nálgast 11 þúsund tonn og ýsuaflinn 3.323 tonn. Tölurnar samsvara 14,5% aukningu í þorski og 18,4% í ýsu.
Brýnt að hækka hlutdeild í ýsu
Eins og undanfarin ár er ýsuafli krókaaflamarksbáta langt umfram það sem þeirra hlutur er í heildarýsuaflanum. Búið er að veiða 64% af því sem þeir fengu úthlutað í upphafi fiskveiðiársins sem er jafn hátt hlutfall og ársfjórðungurinn skilaði á síðasta fiskveiðiári.
Í aflamarkskerfinu er búið að nýta fjórðung af ýsuheimildunum sem er nokkru meira en á þessum tíma í fyrra.
Varðandi árleg vandræði í ýsunni, lítur LS svo á að stjórnvöld verði að koma að því málefni á grundvelli nýrrar aflareynslu sem hópurinn hefur áunnið sér á undanförnum árum.
Ályktun aðalfundar um málefnið er eftirfarandi:
„Aðalfundur Landssambands smábátaeigenda skorar á ráðherra sjávarútvegsmála að hækka hlutdeild krókabáta í ýsu í 25% af heildarúthlutun sem er í samræmi við veiðar þeirra undanfarin ár.
Af úthlutun í þorski hafa krókaaflamarksbátar nú þegar veitt 28%, sem er nokkru lægra en í aflamarkinu þar sem hlutfallið er 31%.