Alþingi – atvinnuveganefnd fjallar um málefni sjávarútvegsins

Breytingar hafa verið gerðar á nefndum Alþingis.  Fastanefndum var fækkað 1. október sl. úr tólf í átta.  Ný nefnd atvinnuveganefnd mun í framtíðinni fjalla um málefni sjávarútvegsins.  
Aðrir málaflokkar sem falla undir nefndina eru:  Landbúnaðarmál, iðnaðar- og orkumál, nýsköpun og tækniþróun, atvinnumál almennt og einnig nýting auðlinda á grundvelli rannsókna og ráðgjafar; eins og segir á heimasíðu nefndarinnar.
Kosið var í atvinnuveganefnd Alþingis í upphafi nýsetts 140. þings.
Formaður hinna nýju nefndar er Kristján L. Möller, Sf.
Aðrir í nefndinni eru:
Björn Valur Gíslason, Vg
Einar K. Guðfinnsson, S
Jón Gunnarsson, S
Lilja Rafney Magnúsdóttir, Vg, 1. varaformaður
Magnús Orri Schram, Sf, 2. varaformaður
Ólína Þorvarðardóttir, Sf
Sigurður Ingi Jóhannesson, F
Þór Saari, Hr
Varamenn:
Árni Þór Sigurðsson, Vg
Ásbjörn Óttarsson, S
Birgitta Jónsdóttir, Hr
Birkir Jón Jónsson, F
Björgvin G. Sigurðsson, Sf
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Vg
Oddný G. Harðardóttir, Sf
Skúli Helgason, Sf
Unnur Brá Konráðsdóttir, S