Aðalfundur Stranda var haldinn á Hólmavík 24. september sl. Að venju var fundurinn vel sóttur og umræður hinar fjörugustu. Allt milli himins og jarðar rætt þar sem m.a. var vitnað í Kommúnistaávarp Marx og Engels í snörpum umræðum um hinn frjálsa markað.
Strandveiðikerfið var Strandamönnum hugleikið, einkum mikilvægi þess fyrir hinar dreifðu byggðir. Rætt var um að líklega væri byggð í Árneshreppi að engu orðin ef strandveiðar nyti ekki við. Á Norðurfirði lönduðu alls 29 bátar 541 tonni sem setti höfnina í þriðja sæti yfir þær aflahæstu við strandveiðar á sl. sumri.
Á félagssvæði Stranda lönduðu 55 strandveiðibátar alls 840 tonnum sem svarar til 9,2% af heildarafla til strandveiða.
Auk strandveiða eru grásleppuveiðar mjög mikilvægar á Ströndum. Þær gengu vel á síðustu vertíð sem m.a. sýnir sig á löndunartölum. Hvergi var landað meiru en á Drangsnesi, en þar skilaði grásleppan alls 1.152 tunnum af hrognum.
Stjórn Stranda er skipuð eftirtöldum:
Haraldur Ingólfsson formaður
Anna Þorbjörg Stefánsdóttir ritari
Már Ólafsson gjaldkeri.
Frá Norðurfirði