LS hefur tekið saman tölur um þorsk- og ýsuveiði krókaaflamarksbáta við upphaf yfirstandandi fiskveiðiár og borið saman við sama tímabil sl. 4 ár. Tímabilið er til og með 19. nóvember – 80 dagar.
Ýsa
Fiskveiðiár – [tölur óslægt] Úthlutun sbr.hlutdeild Ýsuafli t. m. 19. nóvember Hlutall 2018/2019 8.140 Tonn 3.083 Tonn 38% 2019/2020 5.846 Tonn 3.182 Tonn 54% 2020/2021 7.524 Tonn 4.745 Tonn 63% 2021/2022 5.919 Tonn 2.805 Tonn 47% 2022/2023 8.660 Tonn 3.651 Tonn 42%
Viðmælendur eru sammála um að nánast aldrei hafi verið jafnmikið af fiski á miðunum og nú. Kannski ekki að furða þar sem lítið álag er á miðunum.
Halda þarf verulega aftur af sér til að aflinn verði ekki of mikill í hverri sjóferð. Þannig landaði línubáturinn Eskey ÓF á Siglufirði sl. laugardag 9 tonnum, þar sem ýsa var ⅔ hluti aflans. Róið var með 36 bala þar sem smokkur var meginuppistaða beitunnar. Róðurinn varði í 17 klukkustundir og skilaði 250 kg á hvern bala.
Áhugavert er að bera aflabrögðin í ýsunni saman við fiskveiðiárið 2007/2008 þegar leyfilegur heildarafli var 105.823 tonn. Þá voru menn róður eftir róður að rembast við að ná 100 kg á bala, en nú þegar heimildirnar eru rúmum 40% lægri eru aflabrögðin eins og áður sagði.
Mestur þorskafli þrátt fyrir minnstu heimildirnar
Þrátt fyrir 6,1% skerðingu í þorski milli ára hefur þorskafli krókaflamarksbáta aukist um hvorki meira né minna 28% á téðu tímabili. Hafa nú veitt 32% af úthlutuðu aflamarki, sem er mun hærra hlutfall en sömu tímabil þar á undan þegar hlutfallið rokkaði á milli 20 og 23%.
Þorskur
Fiskveiðiár – [tölur óslægt] Úthlutun sbr.hlutdeild Þorskafli t. m. 19. nóvember Hlutall 2018/2019 43.573 Tonn 8.987 Tonn 21% 2019/2020 44.906 Tonn 9.983 Tonn 22% 2020/2021 42.288 Tonn 8.503 Tonn 20% 2021/2022 36.657 Tonn 8.511 Tonn 23% 2022/2023 34.288 Tonn 10.912 Tonn 32%
Greinilegt er að vinnslur leggja um þessar mundir meiri áherslu á að vinna þorsk en ýsu.
Sjá nánar: Þorskur 80 dagar.pdf Ýsa 80 dagar.pdf