Andlát – Jón Breiðfjörð Höskuldsson

Jón Breiðfjörð Höskuldsson er látinn.  Hann var formaður Bárunnar – félag smábátaeigenda í Hafnarfirði og Garðabæ.  Jón sat í stjórn Landssambands smábátaeigenda frá 2008 til 2018.
Screen Shot 2021-02-03 at 12.05.25.png
Jón hafði glímt við erfið veikindi undanfarin ár og lést á Vífilstöðum 23. janúar sl.  Hann verður jarðsunginn á morgun, fimmtudag 4. febrúar, klukkan 13:00 frá Bessastaðakirkju.
Jóni er hér með þökkuð störf sín í þágu smábátaeigenda.   
Landssamband smábátaeigenda sendir eiginkonu Jóns, Elínu Jóhannsdóttur og aðstandendum samúðarkveðjur.  
Streymt verður frá athöfninni á   https://youtu.be/6q3B2_LA_xw