Andstaða við netaveiðum krókabáta

Aðalfundur Smábátafélags Reykjavíkur fór fram í höfuðstöðvum félagsins í Suðurbugt þann 22. september sl.  
Í ávarpi formanns, Þorvaldar Gunnlaugssonar, kom meðal annars fram að félagsmenn hefðu áhyggjur af framtíð smábátaútgerðar frá Reykjavík.  Stöðugt væri verið að þrengja að aðstöðu þeirra í höfninni.  Ferðaþjónustan væri þar fyrirferðamest og svo virtist vera að stjórnendum Reykjavíkurhafnar væri mjög umhugað að uppfylla allar þeirra kröfur.
Þorvaldur hvatti félaga sína að standa á rétti sínum varðandi hafnaraðstöðuna, sem verið hefði frá upphafi byggðar í Reykjavík. 
Á fundinum voru tekin fyrir þau mál sem brenna hvað mest á smábátaeigendum.  Veiðigjald, strandveiðar, makrílveiðar og krafa stærri útgerða innan krókaaflamarks um afnám veiðarfæratakmarkana hjá krókaaflamarksbátum.  Kynnt var bréf þess efnis til LS frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu þar sem óskað er umsagnar við beiðni þar um.  Skemmst er frá því að segja að krafan lagðist illa í félagsmenn sem lögðust gegn öllum slíkum hugmyndum.  Kerfið væri skýrt afmarkað með heimild til notkunar þeirra veiðarfæra sem sköpuðu veiðiheimildir í því – línu og handfærum.  Bent var á að þeir sem vildu fara á troll, dragnót eða net væri í lófa lagið að skipta um veiðikerfi, láta frá sér heimildir í krókakerfinu og hasla sér völl í aflamarkskerfinu.
Eftirfarandi ályktanir voru samþykktar:
1.     Lækkun veiðigjalda
2. Veiðigjöld af leigukvóta verði greidd af þeim sem á kvótann en ekki þeim sem leigir
3. Frjálsar makrílveiðar hjá smábátum
4. Mótmælt er hugmyndum um netaveiðar krókabáta og sameiningu kerfanna 
5. Þeir sem landa á fiskmarkað fái afslátt af veiðigjöldum
6. Strandveiðar 4 dagar í viku í fjóra mánuði á ári.
Þorvaldur Gunnlaugsson var endurkjörinn formaður Smábátafélags Reykjavíkur.  Auk Þorvaldar skipa stjórnina eftirtaldir:
Arthur Bogason
Guðmundur Jónsson
Jón Fr. Magnússon
Páll Kristjánsson
Þorvaldur á veiðum í Faxaflóa.jpg
Þorvaldur Gunnlaugsson formaður Smábátafélags Reykjavíkur á veiðum í Faxaflóa