Arthur Bogason kjörinn formaður LS

36. aðalfundi Landssambands smábátaeigenda lauk með kjöri formanns.  Tveir voru í kjöri, Arthur Bogason og Gunnar Ingiberg Guðmundsson.  Úrslitin voru afgerandi Arthur hlaut 32 atkvæði og Gunnar Ingiberg 10, tveir sátu hjá.   
Arthur er ekki óvanur formennsku í LS þar sem hann gegndi embættinu 1985 – 2013.
Arthur.png
Arthur Bogason formaður Landssambands smábátaeigenda tekur við af Þorláki Halldórssyni sem gegnt hefur starfinu sl. ár, var kjörinn á aðalfundi 2019. 
Arthuri er hér með óskað til hamingju með kjörið og farsældar í starfi.