Áskorun til alþingismanna í Suðurkjördæmi

Reykjanes – félag smábátaeigenda á Reykjanesi – hefur sent þingmönnum Suðurkjördæmis opið bréf um strandveiðar.  Í bréfinu er útskýrt með ítarlegum hætti hversu misráðið það var af sjávarútvegsráðherra að skerða veiðiheimildir til strandveiða um 200 tonn.
Í bréfinu er einnig greint frá margvíslegum afleiðingum þessa t.d. að veiðidagar í júlí og ágúst gætu farið úr 34 niður í 7.   
Reykjanes skorar á alþingismenn kjördæmisins að beita sér af alefli í að leiðrétta þeirra hlut.
Sjá bréfið í heild: