Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur birt auglýsingu um stöðvun strandveiða á svæði D, frá Hornafirði til Borgarbyggðar.
Frá og með 22. ágúst 2012 eru strandveiðar bannaðar á svæði D. Lýkur þar með strandveiðivertíðinni á fiskveiðiárinu 2011/2012.
Alls veiddust um 8700 tonn á 760 báta, meðalaflinn á bát var því rúm 11,4 tonn á bát.
Aflaverðmætið var milli 2,5 – 2,6 milljarðar, eða rúmar 3,4 milljónir að meðaltali á bát.
Veiðarnar þóttu takast með ágætum í sumar og þær setja æ meiri svip á mannlífið í sjávarbyggðum landsins.
Nánari úttekt á strandveiðunum verður birt hér á vefnum síðar.