Hinn 6. maí s.l. gaf sjávarútvegsráðuneytið út auglýsingu um stöðvun strandveiða á svæði A. Stöðvunin gildir frá og með þriðjudeginum 10. maí.
Auglýsingin lítur svona út í heild sinni:
Auglýsing
um stöðvun strandveiða á svæði A, frá Eyja- og Miklaholtshreppi til Súðavíkurhrepps.
1.gr.
Frá og með 10. maí 2011 eru strandveiðar bannaðar á svæði A, frá Eyja og Miklaholtshreppi til Súðavíkurhrepps sbr. 1. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 361, 4. apríl 2011, um strandveiðar fiskveiðiárið 2010/2011.
2.gr.
Auglýsing þessi er gefin út með stoð í reglugerð nr. 361, 4. apríl 2011, um strandveiðar fiskveiðiárið 2010/2011, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 6. maí 2011.
F.h.r.
Jóhann Guðmundsson
Indriði B. Árnason