Aukin makrílveiði á króka

Verðmætasti makríllinn sem veiðist hér við land er veiddur á króka af smábátum.  Gæði makrílsins eru meiri en þegar hann er veiddur í troll sem skilar sér í hærra verði. 
Nokkuð er í land að krókabátar flykkist á makrílveiðar þar sem veiðarnar eru enn á tilraunastigi og stofnkostnaður mikill. 
Afli á yfirstandandi vertíð sýnir að þróunin er í rétta átt.  Nú þegar um mánuður er eftir af vertíðinni er búið að veiða 400 tonn sem er þriðjungi meira en veitt var á allri vertíðinni í fyrra.    
Alls stunda 12 bátar krókaveiðar á makríl.  Krókaaflamarksbáturinn Sæhamar frá Rifi hefur veitt mest, 83 tonn.