Aukning á VS-afla í ýsu

VS-afli verður til þegar skipstjóri ákveður að hluti aflans, allt að 5% skuli ekki reiknast til aflamarks.   VS-aflatímabil hvers fiskveiðiárs eru fjögur og takmarkast við samanlagðan afla þriggja mánaða.  Ónýtt heimild hvers tímabils fellur niður, sem takmarkar mjög þessa sveigju í stjórnkerfi fiskveiða. 
VS er skammstöfun fyrir Verkefnasjóð sjávarútvegsins en andvirði VS-aflans rennur til hans enda hafi aflinn verið seldur á uppboði á viðurkenndum uppboðsmarkaði fyrir sjávarafla.
Á fyrsta tímabili fiskveiðiársins sem lauk 30. nóvember sl. var 230 tonnum af ýsu landað sem VS-afla, sem er veruleg aukning frá sama tímabili 2012 þegar landað var 150 tonnum.   Aftur á móti var lítill munur á heildarafla til Verkefnasjóðsins milli ára á 1. tímabili – 576 tonn nú en 565 tonn 1.9. – 30.11.2012.
Enn eru eftir 10 dagar af 2. tímabili og því of snemmt að skoða samanburð miðað við fiskveiðiárið 2012/2013.
LS hefur óskað eftir því við sjávarútvegsráðherra að tímabilaskipting VS-afla verði afnumin og prósenta verði hækkuð í 10% til að koma til móts við gríðarlegt magn af ýsu sem veiðist sem meðafli við þorskveiðar.