Þann 6. apríl sl. óskaði Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið eftir tillögu frá LS um fjölda veiðidaga á grásleppu.
Grásleppunefnd LS kom saman til fundar fyrr í dag til að fjalla um beiðni ráðuneytisins. Að loknum ítarlegum umræðum varð niðurstaðan sú að leggja til við ráðuneytið að fjölga dögum um sex frá fyrri ákvörðun. Fjöldi veiðidaga á hvert grásleppuleyfi verði því 26 talsins. Ákvörðunin grundvallast á fyrri ákvörðun nefndarinnar að heildarveiði skili 10 þús. tunnum af söltuðum hrognum.
Við ákvörðun studdist nefndin við ýmsar tölulegar upplýsingar sem tóku mið af þeim tíma sem liðinn er frá upphafi veiða. Meðal þeirra eru:
- Fjöldi virkra leyfa nú eru 133 á móti 130 í fyrra
- Meðalveiði á dag hefur aukist um 11% milli ára
- Verð er nú fjórðungi lægra en í fyrra.
Tillaga LS hefur verið send til Gunnars Braga Sveinssonar sjávarútvegs- og landbúnaðarrráðherra.