Á fyrstu tveim mánuðum ársins margfaldaðist sala á ferskri ýsu til Bandaríkjanna, miðað við sama tíma í fyrra. Þeir keyptu mest allra þjóða af henni eða 41% af heildarútflutningnum.
Samhliða góðri magnaukningu jókst heildarútflutningsverðmæti mikið. Það skilaði nú 945 milljónum sem er tæpum 600 milljónum meira en á sama tímabili í fyrra.
Unnið upp úr gögnum frá Hagstofu Íslands