Breytt viðmiðunarár í grásleppu

Á vef Alþingis hafa verið birt tvö stjórnarfrumvörp sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sem varða hagsmuni smábátaeigenda.  Frumvörpin fjalla um atvinnu- og byggðakvóta þar með talið strandveiðar og kvótasetningu á grásleppu.
um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (atvinnu- og byggðakvótar o.fl.).
um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu, sandkola og hryggleysingja).
Bæði frumvörpin voru til meðferðar í samráðsgátt, en hafa nú verið afgreidd frá þingflokkum ríkisstjórnarinnar.  Óljóst er hvenær þau verða sett á dagskrá Alþingis.
Athygli vekur að aflareynsla til kvóta á grásleppu hefur verið breytt, er nú bundin við tímabilið 2014 – 2019, en ekki 2013 – 2018.  Breytingin kemur á óvart í ljósi þess að fyrir grásleppuvertíðina 2019 var eftirfarandi skilaboðum komið á framfæri hér á heimasíðunni:
„Ráðuneytið vill taka það skýrt fram að ráðherra hefur enn til umhugsunar að leggja til breytingar á stjórnun grásleppuveiða, en verði það niðurstaða hans að leggja til kvótasetningu þá verði 2019 ekki viðmiðunarár til aflareynslu á úthlutuðu aflamarki. 
Textinn var samþykktur og birtur með leyfi ráðuneytisins.
Nánar verður fjallað um frumvörpin á næstu dögum.