Í Morgunblaðinu 9. janúar sl. birtist grein eftir Guðmund Þórðarson sviðsstjóra botnsjávarsviðs hjá Hafrannsóknastofnun. Yfirskrift greinarinnar er
Í greininni vitnar Guðmundur m.a. til ályktunar stjórnar LS.
Höfundur segir frá niðurstöðum haustrallsins þar sem fram kom að vísitala þorsks lækkar nú þriðja árið í röð. Hann segir niðurstöður ríma að mestu leyti við mælingar stofnunarinnar frá í mars 2020.
„Lækkunina í visitölunni má rekja til þess að minna mældist af 40-80 cm þorski sem skýrist að hluta til af því að árgangarnir frá 2013 og 2016 eru litlir.Stjórn Landssambands smábátasjómanna sendi á dögunum út ályktun þar sem vakin er athygli á lækkuninni og bent á að líklegasta ástða hennar sé vanveiði þar sem stórþorski hafi fjölgað mikið og fæðusamdráttur hafi stuðlað að stórauknu sjálfsafráni. Skorar landssambandið á ráðherra að hefja gagngera endurskoðun á aðfeðafræði Hafrannsóknastofnunar varðandi ráðgjöf um nýtingu þorsks.