Fiskistofa hefur auglýst eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög fiskveiðiárið 2016/2017.
Úthlutunin byggir á ákvæðum reglugerðar nr. 641/2016 fyrir:
- Sandgerði
- Akureyrarkaupstaður (Grímsey og Hrísey)
Auk reglugerðarinnar gilda sérstakar úthlutunarreglur í eftirtöldum byggðalögum:
- Stykkishólmur
- Ísafjarðarbær (Þingeyri, Flateyri, Suðureyri, Hnífsdalur og Ísafjörður)
- Vopnafjarðarhreppur (Vopnafjörður)
Umsóknarfrestur er til og með 26. janúar 2017.
Athygli er vakin á að umsókn telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi.
Eyðublöð: