Drangey – „annað er í reynd brot á lögum

Drangey – smábátafélag Skagafjarðar 

ályktar um stöðvun strandveiða 2023
 
Drangey-smábátafélag Skagafjarðar mótmælir harðlega ákvörðun matvæla­ráð­herra um stöðvun strandveiða 11. júlí sl. Með því voru meira en 700 sjómenn sviptir tekjum og rekstargrundvelli kippt undan útgerðum strandveiðibáta og fjölda annarra fyrirtækja um allt land. Einnig raskaði það starfsemi fiskmarkaða verulega sem og útflutningi á ferskum fiski. Síðast en ekki síst var besti veiðitími sumarsins tekinn af strandveiðisjómönnum á Norður- og Austurlandi þriðja árið í röð . 
 
Samkvæmt ákvæði laga um stjórn fiskveiða er hverju skipi heimilt að stunda strandveiðar í 12 veiðidaga innan hvers mánaðar mánuðina maí, júní, júlí og ágúst.  Við það á að standa, annað er í reynd brot á lögum.  
  
F.h. stjórnar 
Drangeyjar – smábátafélags Skagafjarðar
 
Magnús Jónsson formaður
Drangey copy 6.jpg