Drangey boðar til fundar

 
 
Drangey – Smábátafélag Skagafjarðar hefur boðað til félagsfundar.
 
Fundurinn verður haldinn á Kaffi Krók Sauðárkróki á morgun laugardaginn 18. mars kl 15:00.
 
Á fundinum verður m.a. fjallað um eftirtalin málefni:
 
• Strandveiðar
 
• Grásleppuvertíðin 2017 – verð á       vertíðinni, söluhorfur ofl. 
 
• Makrílveiðar smábáta
 
• Stjórnun fiskveiða
 
 
Örn Pálsson framkvæmdastjóri LS mætir á fundinn.
 
 
Félagsmenn í Drangey eru hvattir til að fjölmenna til fundar og sýna þannig samstöðu með baráttumálum smábátaeigenda.
 
 
Formaður Drangeyjar er Steinar Skarphéðinsson.