Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur birt í Samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi til laga um sjávarútveg. Umsagnarfrestur er til 22. desember nk.
Við kynningu á frumvarpsdrögunum segir eftirfarandi (ltbr. eru LS):
Helstu nýmæli frumvarpsins eru:
- Vistkerfis- og varúðarnálgun verði beitt með skýrari hætti en mælt er fyrir um í núgildandi ákvæðum laga.
- Verndarsvæði í hafi, ráðherra verði veitt heimild til að kveða á um vernd svæða þar sem nýting nytjastofna er takmörkuð eða bönnuð.
– Fiskveiðiárið verði almanaksárið, í stað 1. september til 31. ágúst ár hvert.
- Tegundum veiðarfæra verði beitt sem stjórntæki til að stýra veiðiálagi í stað þess að stærð skipa sé beitt sem stjórntæki.
- Mörk hámarksaflahlutdeildar verði rýmkuð hjá félögum sem skráð eru á markað, hækki um fjórðung og verði 15% og þannig hvatt til dreifðara eignarhalds og aukins gagnsæis um eignar- og stjórnunartengsl.
- Hugtakið yfirráð verði skilgreint með sama hætti og yfirráð skv. 17. gr. samkeppnislaga.
- Hugtakið tengdir aðilar nái til fjölskyldutengsla og taki til maka, sambúðarfólks, skyldmenna í beinan legg og fyrsta legg til hliðar, til samræmis við ákvæði um minnihlutavernd í lögum um hlutafélög.
- Sérregla um hlutdeildartengsl, þar sem lagt er til að aflahlutdeild félags telst að hluta til hjá eiganda að 20% eða meira í réttu hlutfalli við atkvæðisrétt hans í félagi.
- Aðlögunarfrestur, útgerðir hafi þrjú ár til að aðlaga sig að breyttum reglum, ef þær fara yfir mörk hámarksaflahlutdeildar skv. frumvarpinu.
- Upplýsingaskylda lögð á stærri útgerðir og þeim beri með reglubundnum hætti að veita Fiskistofu upplýsingar um eignarhald og eignartengsl.
- Lögð til viðvarandi eftirlitsskylda með eignarhaldi og eignatengslum og stofnuninni fengnar skýrari heimildir til að afla gagna til að sinna eftirliti sínu.
- Opinber birting á upplýsingum, m.a. um skiptingu aflahlutdeilda, eignarhald, eignartengsl og viðurlagaákvarðanir.
- Markmið byggðakerfa og mælikvarðar, þ.e. strandveiða, aflamarks Byggðastofnunar og innviðastuðnings, verði lögfest.
- Innviðastuðningur til sjávarbyggða komi í stað almenns byggðakvóta. Í samráði eru lagðar til tvær útfærslur á innviðastuðningi.
- Leyfi til nýtingar sjávargróðurs verði aðeins veitt að undangenginni fyrirspurn um mat á umhverfisáhrifum. Þá verði nýtingaráætlanir leyfishafa birtar opinberlega.
- Veiðigjald á uppsjávarfisk hækki úr 33% í 45% og samhliða verði fellt niður 10% álag á uppsjávarfisk. Þá er lagt til að felld verði brott ákvæði um að veiðigjald sé rekstrarkostnaður sem heimilt sé að draga frá tekjum.
- Viðurlagaheimildir Fiskistofu skýrðar og stofnunni veitt heimild til að fara fram á úrbætur, heimild til beitingu stjórnvaldssekta og heimild til að ljúka málum með sátt.
- Skel- og rækjubætur verði skertar um 25% á ári á 4 ára tímabili og úthlutun bóta verði hætt 31. desember 2028.
- Línuívilnun verði skert um 25% á ári á 4 ára tímabili og línuívilnun verði felld niður 31. desember 2028.
- Gildistaka frumvarpsins verði það að lögum, verði 1. september 2025.
Nánar verður fjallað um frumvarpið á næstu dögum